Firriato
  • Svæði: Sikiley
  • Eigandi: Girolamo Di Gaetano og Salvatore Di Gaetano
  • Ráðgjafi: m.a. Giuseppe Pellegrino
  • Stofnað: 1985
  • Framleiddar flöskur: 4.000.000
  • Hektarafjöldi: 200
  • Hlutfall eigin þrúga af heildarframleiðslu: 30%
  • Vefur: www.firriato.it

 

Á sínum tíma er ég stofnaði Vín & Mat leitaði ég að framleiðanda á Sikiley sem uppfyllt tvö skilyrði; a) frábær vín á b) góðu verði.  Ég studdist við hin ýmsu meðmæli ítalskra og erlendra vínfræðinga og gagnrýnenda og tók eftir því að nafnið Firriato skaut mjög oft upp kollinum.

Hjá Firriato má segja að gæti nokkurra áhrifa frá Nýja heiminum.  Það er ekki bara nóg að þeir skuli nota talsvert af "erlendum" tískuþrúgum eins og Syrah, Merlot, Cabernet Sauvignon og Chardonnay heldur er framleiðslunni stýrt af flokki víngerðarmanna frá löndum eins og Ástralíu, Kaliforníu og Nýja Sjálandi.  Þessir framandi straumar hafa þó fyrst og fremst það hlutverk að styðja við og bæta hinn ekta sikileyska karakter vínanna.  Yfirumsjón er í höndum hins rótgróna Sikileyings Pellegrino og þrúgurnar eru að lang mestu leyti sikileyskar.

Þessi sterki ráðgjafahópur lýsir vel þeim ásetningi Di Gaetano bræðranna að hámarka þau hagstæðu skilyrði sem felast í landi þeirra og fylgja þeim eftir á hverju stigi framleiðslunnar. 

Vínin eru vel gerð, með aþjóðlegt yfirbragð en sikileyskan kjarna sem svíkur engan.  Þau einkennast m.a. af þroskuðum ávexti, háu áfengismagni og hóflegri eikarnotkun.  Þau eru góð kaup, öll sem eitt.


Rauðvín


Hvítvín



Firriato er Vínframleiðandi ársins 2006 á Ítalíu að mati Il Mio Vino. Meira á blogginu 


Once ... in the wilds of Afghanistan, I lost my corkscrew, and we were forced to live on nothing but food and water for days.

W. C. Field