Rietine
  • Svæði: Chianti Classico í Toscana
  • Eigandi: Gaffuri-Lazarides hjónin
  • Stofnað: 1989
  • Framleiddar flöskur: 70.000
  • Hektarafjöldi: 13,5 af vínviði
  • Hlutfall eigin þrúga af heildarframleiðslu: 100%
  • Vefur: www.rietine.com

 

Rietine er ekki meðal þekktari framleiðanda í Chianti Classico. Fyrirtækið er ungt, lítið og Gaffuri-Lazarides hjónin hafa ekki beinlínis farið stórum í markaðs- og kynningarmálum. Metnaður þeirra og orka fer í að framleiða góð vín.

Ég rakst á Rietine nafnið fyrst á síðum Wine Spectator þar sem framleiðandinn skaut mörgum þekktari nöfnum ref fyrir rass bæði hvað varðaði einkunnir sem vínin fengu og góð verð. Ég fann síðar Chianti Classico 1999 frá Rietine í vínbúð í Flórens og kolféll fyrir því. Ég ákvað því að hafa samband og varð Rietine fyrsti framleiðandinn frá þessu svæði þrátt fyrir að margir frægari væru á lausu. Galina, húsfrúin, var hæstánægð með að “litli Rietine væri á litla Íslandi”.

Vínekrurnar eru í 450 m. hæð yfir sjávarmáli á svæði sem kennt er við þorpið Gaiole, eitt af bestu svæðum Chianti Classico. Næsti nágranni til vesturs er Castello di Brolio. Hér eru allar þrúgur handtýndar, og það eingöngu af ellilífeyrisþegum (Ítalir hætta fremur ungir að vinna) úr nágrannasveitunum sem hafa nauðsynlega alúð og reynslu.

Galina og Mario áttu Michelin-stjörnu veitingastað í Sviss áður en þau söðluðu um, fluttust alfarið til Ítalíu og keyptu Rietine. Ástríðan og metnaðurinn sem þarf í slíkan veitingastað hefur flust yfir í vínræktina.



Rauðvín

Merlot og Lambrusco, 3.290 kr.



Sætvín



Sterk vín

Merlot og Sangiovese, 4.490 kr. 





.
"But then of course Cassis tastes better at Cassis! Debussy sounds better after a walk through the foggy, puddled streets of latenight Paris. You are in the midst of the atmosphere that created it. The wine is not different, the music is not different. You are."
- Kermit Lynch