Amedei
  • Svæði: Toskana
  • Eigendur: Systkynin Cecilia og Alessio Tessieri
  • Stofnað: 1990
  • Mottó: Amedei er draumur í formi súkkulaðis
  • Vefsíða: www.amedei.com

 

Systkynin Alessio og Cecilia Tessieri stofnuðu Amedei súkkulaðigerðina árið 1990. Súkkulaðigerðin er staðsett skammt frá Písa í Toskana á Ítalíu. Alessio sér um reksturinn, Cecilia er súkkulaðimeistarinn. Stuttu eftir stofnunina tryggðu systkynin sér einkarétt að Chuao kakóekrunum í Venezuela sem hörfðu fram að þessu höfðu tilheyrt heimsþekktu súkkulaðifyrirtæki. Í Chuao ríktu aldagamlar framleiðsluaðferðir og gæðin voru framúrskarandi. Alessio bætti lífskjör kakóbændanna með því að borga upp skuldir þeirra, kaupa handa þeim baseball-búninga og ávann sér þannig traust bændanna, virðingu og hinn dýrmæta einkarétt.

Systkynin sjálf framkvæma og fylgjast með týnslu baunanna og sjálfri kakógerðinni sem er einstakt í bransanum því flest súkkulaðifyrirtæki kaupa sitt kakó af milliliðum. Alessio er annt um að vinna náið með bændunum sem rækta kakóbaunirnar og að þeir séu ánægðir með hag sinn enda borgar Alessio þeim margfalt markaðsverð til að tryggja hæstu gæði. Árangurinn hefur ekki látið á sér standa, á skömmum tíma er Amedei orðið leiðandi fyrirtæki á heimsvísu í gerð súkkulaðis, ekki fyrir stærð heldur gæði. Amedei er nefnilega lítið fyrirtæki og líkist frekar stóru bakaríi en verksmiðju.

"Við erum ekki verksmiðja" sagði Alessio okkar þegar við hittum hann fyrst og undirstrikar að smæðin er mikilvæg til að geta tryggt gæði á sérhverju stigi framleiðslunnar.

Þeir eru ekki hógværir skríbentarnir hjá ítalska vín-tímaritinu Gambero Rosso í umfjöllun sinni um Amedei. Á forsíðu blaðsins (október 2001) stendur "E italiano il cioccolato piu buono del mondo", "besta súkkulaði í heimi er ítalskt". Þótt taka beri slíkar yfirlýsingar með ró og spekt þá getum við ekki leynt því að þessi hugsun sótti að okkur þegar við smökkuðum súkkulaði frá Amedei fyrst. Í stuttu máli sagt þá höfum við sjaldan orðið fyrir jafn magnaðri bragð-reynslu. Við höfðum einfaldlega ekki áttað okkur á því fyrr hversu margslungið og tælandi súkkulaði gæti hugsanlega orðið.

 


View Vínframleiðendur á Ítalíu in a larger map

Hvar fæst Amedei?

Mesta úrvalið af Amedei súkkulaði fæst í Ostabúðinni á Skólavörðustíg. Í Sandholt bakaríi er einnig að finna gott úrval. Aðrir sölustaðir eru Kokka á Laugaveginum og Kaffifélagið á Skólavörðustíg. Amedei súkkulaði er notað í eldhúsinu á La Primavera.

Stærri einingar, gjafakassa og Amedei Smakkpakka má panta beint hjá okkur.

Skoðaðu vefsíðu Amedei


Amedei Smakkpakkinn

Amedei Smakkpakkinn er góð leið til að kynnast gæðum Amedei súkkulaðis. Við setjum 6 ólíkar tegundir saman í pakka (samtals 400g) og afhendum þér hann.

Svona bland í poka.

Smakkpakkinn kostar 2.400 kr. og þú pantar hann með því að senda okkur tölvupóst á vinogmatur@internet.is. Fyrir 3.700 kr. bætum við tveimur tegundum af Selezioni gjafaöskjum, I Cru og Toscano Black, í pakkann. 

Lestu meira um Smakkpakkann

Viðurkenningar

Amedei súkkulaði hefur borið höfuð og herðar yfir súkkulaði frá öðrum framleiðendum í keppni Academy of Chocolate í London sem haldin er á tveggja ára fresti.

Súkkulaðikeppnin 2005 og 2007


Amedei súkkulaði í hnotskurn

Hvert súkkulaði Amedei hefur sinn karakter. Hann getur stafað af ólíkum framleiðslusvæðum, framleiðsluaðferðum eða innihaldi súkkulaðsins. Það er skemmtilegur leikur að smakka súkkulaðið og bera saman hvernig ólíkir þættir endurspeglast í sérhverri tegund súkkulaðis. T.d. er hægt að fá 70% súkkulaði "I Cru" frá 6 ólíkum löndum (Grenada, Ecuador, Jamaica, Madagaskar, Trinidad og Venezuela) og 70% súkkulaði sem framleitt er úr aðeins einni tegund kakóbauna "Chuao" (Amedei hefur einkarétt á þessari kakóbaunategund og vex hún á plantekru í Venezuela). Einnig er hægt að smakka hvernig mismumandi kakóstyrkur hefur áhrif á heildarútkomuna með því að prófa súkkulaði úr 70%, 66% eða 63% kakói. Svo er að sjálfsögðu ómótstæðilegt mjólkursúkkulaði, rjómakennt með áberandi karamellukarakter og nýjar tegundir með hnetum eða ávaxtakurli. 

Amedei framleiðir líka konfekt þar sem hver moli er heimur út af fyrir sig.


Bækur um súkkulaði á Amazon


Súkkulaðitenglar


"I think it is a great error to consider a heavy tax on wines as a tax on luxury. On the contrary, it is a tax on the health of our citizens."
- Thomas Jefferson