Artadi
- Svæði: Rioja
- Eigandi: Juan Carlos Lopes de la Calle
- Stofnað: 1985
- Framleiddar flöskur:
- Hektarafjöldi: 25
- Hlutfall eigin þrúga af heildarframleiðslu: 100%

Artadi var stofnað árið 1985 sem lítið samyrkjuvínbú (co-op) en var nokkrum árum síðar keypt af víngerðarmanni þess Juan Carlos og félaga hans Jean-Françoise. Vínekrur Artadi hafa sérstaka staðsetningu í Rioja sem skilur þá frá flestum öðrum framleiðendum, þarna er jarðvegurinn óvenju kalkríkur og loftslagið fremur svalt.
Juan Carlos notar ekki orð eins og "crianza" eða "riserva" á vín sín því hann vill ekki beygja sig undir úreldar reglugerðir. Helst vildi hann sleppa "Rioja" og kenna sig einungis við Alavesa sem er hluti af Rioja. Vínin eru látin þroskast í franskri eik frekar en amerískri, þau dýrari í nýrri eik en þau ódýrari í notaðri. Vínviðurinn er gamall, eða meira 80 ára í Grandes Anadas.
Eftir að hafa ítrekað fengið toppeinkunnir hjá gagnrýnendum eins og Robert Parker og fleirum eru bestu vín Artadi orðin einhver eftirsóttustu vín Spánar.