Casa de la Ermita
- Svæði: Jumilla í Murcia
- Eigandi: Pedro José Martínez Marín
- Víngerðarmaður: Marcial Martínez Cruz
- Stofnað: 1999
- Framleiddar flöskur: 2.000.000
- Hektarafjöldi: 170 af vínviði
- Hlutfall eigin þrúga af heildarframleiðslu: 80%
- Vefur: www.casadelaermita.com

Fyrir örfáum árum var Jumilla ekki beinlínis á meðal þekktari vínræktarsvæða Spánar.
Spænska vínbyltingin hefur hins vegar ekki látið þetta svæði ósnert og í dag er svæðið kjörlendi þeirra sem leita að miklum gæðum á góðu verði. Vínin eru gjöful, þykk og bragðmikil, og eikin oft áberandi.
Á sumrin verður afar heitt í Jumilla. Sólarstundir eru þar svo margar (um þrjú þúsund á ári, eða rúmlega átta á dag) að til að draga úr áhrifum sólarinnar eru flestar vínekrur í hlíðum sem vísa til norðurs frekar en til suðurs. Úrkoman er aðeins um 300 millimetrar á ári þrátt fyrir að vínekrurnar séu í 700-850 metra hæð. Hitastigssveiflur er miklar eða allt að 20 gráður milli dags og nætur, og á veturna getur líka orðið mjög kalt. Í heildina er veðurfarið þó fremur útreiknanlegt og geta því vínframleiðendur búið til góð vín með því að ganga út frá þessum öfgum sem gefnum.
Nokkrir framleiðendur eru í broddi fylkingar, þar á meðal Casa de la Ermita. Virðing Marcial Martínez Cruz og félaga fyrir eiginleikum náttúrunnar birtist í hinum mörgu lífrænu vínum sem þeir framleiða og því að vínframleiðsluferlinu er stjórnað af þyngdarlögmálinu.