Castell del Remei
  • Svæði: Costers del Segre í Katalóníu
  • Eigandi: Cusiné fjölskyldan
  • Stofnað: 1780
  • Framleiddar flöskur: 500.000
  • Hektarafjöldi: 400 þar af 45 af vínviði
  • Hlutfall eigin þrúga af heildarframleiðslu: 50%

 

Castell del Remei á sér mikla sögu sem vínframleiðandi.  Hann var fyrsti framleiðandinn í Katalóníu til þess að markaðssetja vín í eigin nafni og í kringum aldamótin 1900 hlaut hann margar viðurkenningar.  Hann var jafnframt einn fyrsti framleiðandinn á Spáni til þess að hefja ræktun útlendra þrúgna svo sem Cabernet Sauvignon.  Á síðari hluta aldarinnar hallaði undan fæti, allt þar til núverandi eigendur keyptu kastalann 1982 og tóku hann gjörsamlega í gegn.  Í dag er Castell del Remei til fyrirmyndar hvað varðar framleiðsluaðbúnað.  Hann hefur sitt eigið póstnúmer sem undirstrikar mikilvægi hans í sögu héraðsins.

Öll umgjörð og ímynd kastalans er engu að síður nýtískuleg.  Meira að segja yfirmennirnir tveir sem ég hitti voru klæddir nýjustu tísku með ferköntuð gleraugu.  Og miðarnir eru flottir.  Þessi meðvitaða stefna endurspeglast í vínunum sem eru nútímaleg og flott, það er auðvelt að drekka þau og auðvelt að líka þau.


Rauðvín


 


 


"It was with a delicious feeling of lightheadedness and supreme contentment that, in the late afternoon, I paid my bill, bid an affectionate farewell to M. Point, and went out into the garden."
- Joseph Wechsberg