Chateau de Lascaux
  • Svæði: Pic Saint Loup í Languedoc
  • Eigandi: Jean-Benoît Cavalier
  • Stofnað: 1984, 1990 var fyrsti árgangurinn
  • Framleiddar flöskur: 200.000
  • Hektarafjöldi: 45 af vínviði
  • Hlutfall eigin þrúga af heildarframleiðslu: 70%, restin leigð af öðrum fjölskyldumeðlimum 
  • Mottó: Epris de sens
  • Vefsíða: www.chateau-lascaux.com

Fjölskylda Cavalier hefur búið á svæðinu frá því á 12. öld. Í kringum 1750 opnaði Joseph Cavalier vínsmökkunarherbergi og lagði grunninn að kynslóðum víngerðarmanna. Jean-Benoît Cavalier hætti í verkfræðinámi 1984 til að taka yfir víngerðina og endurskipuleggja hana og 1990 var fyrsti árgangurinn. Síðan hafa vínin hans birtst á listum eins og "150 smart buys from 50 top producers" hjá Wine Spectator og er Chateau de Lascaux jafnan nefndur í hópi þeirra framleiðenda sem eru leiðandi fyrir svæðið.

Pic Saint Loup er eitt af betri vínræktarsvæðum innan Coteaux de Languedoc. Það er nyrsta og svalasta vínræktarsvæðið og nýtur sérstaks veðurfars í skjóli Pic Saint Loup fjallsins m.a. sem skýlir vínekrum fyrir hvössum mistral og tramontana vindum. Eikartré, furur, timjan og rósmarín vaxa kringum vínekrur Chateau de Lascaux og mynda það sem frakkar kalla "garrique". Steinefnaríkur jarðvegur og garrique endurspeglast í víninu sem rósmarín, mynta, kanill, lakkrís, vanilla o.s.frv.

Sjálfbær landbúnaður á sér stað hjá Chateau de Lascaux. Vínvið er plantað í kringum 6000 plöntur per hektara og uppskeran lítil skv. ströngum gæðastöðlum eða í kringum 30 til 45 hektólítrar per hektara. Vínekrur eru grasi vaxnar á veturna en plægðar á sumrin og öll ræktun fer fram skv. sjálfbærum landbúnaði og lífrænum aðferðum. Vínviður vex hátt og er klipptur til að lofta um plönturnar og til að blöðin njóti sólarljóssins.


Rauðvín

Syrah, Grenache og Mourvèdre, 1.600 kr.

Syrah og Grenache, 1.750 kr.



"Rejecting a wine because it is not big enough is like rejecting a book because it is not long enough, or a piece of music because it is not loud enough."
- Kermit Lynch