Chateau de Montfaucon
  • Svæði: Rón
  • Eigandi: De Pins fjölskyldan
  • Stofnað: Montfaucon kastalinn frá 11. öld - vínframleiðsla endurnýjuð 1995
  • Framleiddar flöskur: 150.000
  • Hektarafjöldi: 45
  • Hlutfall eigin þrúga af framleiðslu: 100%
  • Vefur: www.chateaumontfaucon.com


Við þekkjum engan víngerðarmann sem er ekki ástríðufullur gagnvart því sem hann starfar við. Rodolphe de Pins er ekki undantekning þótt réttara væri að segja að hann væri gjörsamlega gagntekinn.

Rololphe er opinn, metnaðarfullur og frábærlega hæfur víngerðarmaður sem sótti lærdóm sinn ekki bara innan Frakklands heldur til ólíkra heimshorna, m.a. í UC Davis háskólann í Kalíforníu og hjá hinni rómuðu Henschke víngerð í Barossa í Ástralíu.

Þótt saga víngerðar við Montfaucon kastala spanni margar aldir var það ekki fyrr en Rodolphe tók við lyklunum 1995 að víngerðin komst á flug. Metnaður Rodoplphe liggur m.a. í því að lágmarka uppskeru allra vína sinna per hektara svo gæðin séu sem best. Hann er veikur fyrir gömlum vínvið sem hann kaupir af nágrönnum sínum þegar hann getur og ræktar vínekrurnar á lífrænan hátt með það að markmiði að búa til vín sem eru einlæg og sönn Rónarvín.

Á þessum bæ er það blöndunaraðferðin sem ræður ríkjum. Öll vínin fyrir utan eitt eru samsett af ólíkum þrúgum. Þannig verða þau flókin, fáguð og í fullkomu jafnvægi. Frekar en blanda þeim saman eftir að gerjun lýkur setur Rodolphe allt að fimm ólíkar þrúgur í sama tankinn þar sem þær gerjast í sátt og samlyndi.

Þessi eiginleiki vínanna og fílósófían á bak við þau eru einmitt það sem heillaði okkar svo mikið. Raunar —eins og Rololphe sjálfur — urðum við gagntekin.

Í dag búa foreldrar Rodolphe í kastalanum sjálfum en hann og unnusta hans Mari frá Finnlandi hafa gert sér hreiður í litlu húsi samvaxið víngerðarkjallaranum. Einn góðan veðurdag munu hjónakornin væntanlega flytja sig upp í Montfaucon kastalann sem gegndi áður mikilvægu hernaðarlegu hlutverki sem varðstöð við vesturbakka Rónarárinnar.

 


View Vínframleiðendur í Frakklandi in a larger map


Rauðvín

Grenache, Syrah, Cinsault og Carignan, 2.489 kr.


Hvítvín

Viognier, Marsanne, Clairette, Bourboulenc og Picpoul, 2.913 kr.


Hér má skoða sjónvarp frá heimsókn okkar til vínframleiðenda í Frakklandi haustið 2008 (Montfaucon byrjar 3:00)

 


"Always do sober what you said you'd do drunk. That will teach you to shut your mouth."
- Hemingway