d'Arenberg
  • Svæði: McLaren Vale, S-Ástralía
  • Eigandi: Osborn fjölskyldan
  • Ráðgjafi: Chester Osborn
  • Stofnað: 1912 af Joseph Osborn
  • Hektarafjöldi: 140 þar af 60 undir vínvið, 500 í leigu
  • Meðalregn á ári: 650-700ml
  • Mottó:  The Art of Being Different
  • Vefsíða: www.darenberg.com.au

d'Arenberg hefur verið í eigu sömu fjölskyldunnar í næstum 100 ár og rauði borðinn hefur einkennt flöskurnar frá því 1959. Rauði borðinn markaði upphafið að frægðarferli d'Arenbergvínanna sem ekki sér fyrir endann á.

d'Arenberg er frábærlega staðsettur í McLaren Vale dalnum þar sem hitarnir eru tempraðir með svalri sjávargolu úr St. Vincent flóanum og kvöldgolu frá Willunga hæðunum fyrir ofan. Það verður því aldrei og heitt né of kalt og á veturna er svolítil úrkoma. Þetta eru fyrirtaksskilyrði til að þroska þrúgur.

Hefðbundnar framleiðsluaðferðir eru notaðar frekar en nýjasta tækni svo karakter vínanna og "terroir" megi varðveitast sem best. Þannig er t.d. hettan sem myndast í gerjunartönkunum rofin með því láta starfsmenn trampa berfættir á henni.

d'Arenberg er meðalstór framleiðandi á ástralskan mælikvarða sem hefur engu að síður varðveitt ímynd "litla" gæðaframleiðandans með því að aðhyllast þessar gömlu aðferðir, gerja allar ólíkar vínekrur í sitt hvoru lagi áður en þeim er blandað saman, filtera vínin lítið o.sfrv. Ástríða Chesters fyrir viðfangefninu, jarðveginum og þrúgunum endurspeglast í þeim aragrúa vína er hann býr til og frumlegum og persónulegum nöfnum sem hann þeim gefur.

 


View Vínframleiðendur í Ástralíu in a larger map

Rauðvín

Shiraz, 5.500 kr.

Shiraz, 2.890 kr.

Shiraz og Viognier, 2.913 kr.

Grenache, Shiraz og Mourvedre (GSM), 2.289 kr.


Hvítvín


Riesling, 2.289 kr.



Benjamin Christie heimsækir d'Arenberg og tekur viðtal við Chester Osborn sem lýsir því hvernig hann blandar vínum og ýmsu öðru sem varðar víngerðina. Chester nefnir að vínin fáist í 60 löndum, m.a. á Ísland (5:45) ! Kíktu á viðtalið á youtube.

 

Chester smakkar The Dead Arm 2005. Kíktu á hans eigin lýsingu.

Hér er svo smá promo frá víngerðinni sjállfri.

 

"Chester Osborn, the remarkable person behind this enormous array of both impeccably high quality and value-priced wines, deserves considerable accolades for what he is able to achieve at all price ranges. If you love Australian wines, d’Arenberg is a winery to seek out as these offerings all possess abundant soul as well as character. In short, the accolades that proprietor/winemaker Chester Osborn receives not only from The Wine Advocate, but virtually everybody in the wine world, are all well deserved."

- Robert Parker, The Wine Advocate  


"Rejecting a wine because it is not big enough is like rejecting a book because it is not long enough, or a piece of music because it is not loud enough."
- Kermit Lynch