Kóngurinn í Valpolicella, er Romano Dal Forno jafnan kallaður til að lýsa stöðu hans og virðingu sem víngerðarmanns. Rauðvínin tvö sem hann framleiðir, Valpolicella og Amarone, eru að margra mati hápunktur víngerðar á svæðinu, svo einstök að erfitt er í raun að setja þau á bekk með öðrum slíkum vínum frá héraðinu. Þau eru í sérflokki.
Ekki furða þar sem lærimeistari hans var Quintarelli heitinn. Romano Dal Forno hefur síðan beitt sér fyrir betrumbótum á ýmsum stigum víngerðarinnar og er enn að. Eða eins og einn framleiðandinn á svæðinu sagði: "Á meðan við hinir leyfum okkur að skreppa í golf síðdegis er Romano heima. Hann vinnur alla daga. Hann þekkir ekki bara allar þrúgur sínar heldur hvert einasta ber."
Ný víngerð hefur nú risið í kringum framleiðsluna og hektarar frá tengdasyni og frænda hafa bæst við svo framleiðslugetan er meiri en áður, krafan á gæði er óbreytt. Nútímaleg hugsun, tækni og framsýni sameinast þar virðingu fyrir möguleikum og duttlungum náttúrunnar.
View Vínframleiðendur á Ítalíu in a larger map
Rauðvín
Sætvín
Wine Spectator fjallar lofsamlega um Dal Forno Romano í þessu vídeósmakki