Domaine d'Aupilhac
  • Svæði: Montpeyroux í Languedoc
  • Eigandi og víngerðarmaður: Sylvain Fadat
  • Stofnað: 1989, 1991 var fyrsti árgangurinn
  • Framleiddar flöskur: 90.000
  • Hektarafjöldi: 25 af vínviði
  • Hlutfall eigin þrúga af heildarframleiðslu: 100%
  • Vefsíða: www.aupilhac.net

Þótt Sylvain hafi byrjað nútímalega vínrækt á landareigninni árið 1989 hafa fimm kynslóðir fjölskyldunnar framleitt þar vín á undan honum. Vín rennur um æðar hans eins og hann segir sjálfur, lýsir það vel þessum einkar ástríðufulla víngerðarmanni. Vínræktin er lífræn og bíódýnamísk. Sylvain forðast að flagga því sérstaklega, honum finnst það bara eðlilegt, og vill frekar að fólk kaupi vínið út af því að það er gott.

Frá því að Sylvain setti fyrstu vínin á flöskur 1991 hefur margt runnið til sjávar. Hann hefur keypt meira land til vínræktar, byggt hús fyrir víngerðina og fjárfest í fullkomnum tækjum og eikartunnum til víngerðarinnar. Sylvain notar litlar eikartunnur í hófi og kýs í þeirra stað stórar "foudres" eikartunnar svo eikaráhrifin verði mild.

Sylvain kýs að gera vín sem eru fersk og góð til drykkju með mat. Staðbundnar þrúgur eru hans uppáhald og finnst honum gaman að gera vín úr þrúgum sem sjaldan eru einar og sér t.d. 100% Cinsault eða 100% Carignan. Hann gerir ekkert 100% Syrah því honum finnst þrúgan of þung og skorta jafnvægi. Hann hefur meira að segja selt 2h af Shyrah vínekrum þrátt fyrir að þrúgan sé í sérstöku uppáhaldi hjá alþjóðlegum víngagnrýnendum um þessar mundir. Sylvain leyfir sér líka eina Bordaux blöndu úr Merlot, Cabernet Franc og Cabernet Sauvignon. Alls eru vínin 9, þar af tvö hvít og eitt rósavín. 

Sylvain Fadat er fyrirmyndar víngerðarmaður að okkar mati.



Rauðvín


 


"Því miður er almenn vínmenníng hérlendis á því ómenníngarstigi, að fyrir þá sök eina er ekki með sanngirni hægt að telja íslendinga meðal siðaðri þjóða einsog er."

- Halldór Laxness