"Ímyndaðu þér að mismunandi "terroir" séu sinfónía sem er stjórnað og túlkuð af víngerðarmanninum. Það er hægt að skynja persónulegt handbragð hans og ástríðu í gegnum vínin.", segir Etienne Grivot sonur Jean Grivot.
Þetta eiginlega mottó hans lýsir vel því nostri og metnaði sem hann leggur í hvert þeirra vína sem þeir framleiða af ólíkum vínekrum í og í nágrenni við heimabæ þeirra Vosne-Romanée, þ.á.m. hin eftirsóttu Grand Cru Richebourg, Échezeaux og Clos de Vougeot.
Smelltu til að sjá lista/kort yfir allar vínekrurnar sem þeir framleiða vín frá
Þrátt fyrir þessa forréttindastaðsetningu tekur Etienne engu sem gefnu heldur hefur hann lagt mikla vinnu í að rannsaka allt framleiðsluferlið frá grunni með það fyrir augum að gera ennþá betri vín heldur en þau sem þegar hafa fært framleiðandanum glæstan orðstí í gegnum síðustu áratugi.

Rauðvín
- - -
Við flytjum auk þess inn nokkur önnur rauðvín frá Domaine Jean Grivot í Village, Premier Cru og Grand Cru flokki. Sendu okkur tölvupóst á vinogmatur@vinogmatur.is til að fá allan listann.
Hér má skoða sjónvarp frá heimsókn okkar til vínframleiðenda í Frakklandi haustið 2008 (Jean Grivot byrjar 7:27).
"It would be difficult to find a domaine with more integrity than this." - Serena Sutcliffe (Wines of Burgundy)
"Grivot is one of my favourite winemakers in Burgundy" - Clive Coates (Decanter)
Clive Coates velur Domaine Jean Grivot sem einn af 17 bestu framleiðendum Búrgúndarhéraðs.