Domaine La Marèle
  • Svæði: Languedoc
  • Eigandi: Frédéric Porro
  • Stofnað: 1999
  • Framleiddar flöskur: 2.500
  • Hektarafjöldi: 8 af vínviði
  • Hlutfall eigin þrúga af heildarframleiðslu: 100%
  • Vefur: www.lamarele.com

Tilviljun ein réð því að við rákumst á Domaine La Marèle. Ég var á Vinisud vínsýningunni í Montpellier að skoða vínin frá Languedoc héraðinu og tók stefnuna básinn hjá Mas de Perry. Við básinn sat maður í hjólastól sem hét Frédéric. Frédéric var vinur Stéphanie hjá Mas de Perry og reyndist líka framleiða vín sem var dregið upp med det samme. Og ekkert smávegis vín. Frédéric framleiðir aðeins eitt vín og aðeins 2.500 flöskur af því. Það seytlast út gegnum veitingastaði hér og þar sem margir hverjir skarta Michelin stjörnum. Ég hef stundum sagt að ef til eru góð meðmæli þá eru það meðmælin sem felast í því að gæðaveitingastaðir með alvöru vínlista falist eftir víninu. Þá veit maður að vínið er ekki bara gott í sjálfu sér heldur fer það vel með mat og það þeim gæðamat sem framleiddur er á slíkum stöðum. Má þar nefna veitingastaði eins og Michael Bras (Frakkland) sem hefur þrjár Michelinstjörnur og Jardin des Sense (Frakkland) og Chez Dominique (Finland) sem báðir hafa tvær. Einnig Gordon Ramsay Claridge í London og margir fleiri.

Vínekran er staðsett 20 km. norðvestur af Montpellier í um 200 m. hæð. Þrúgurnar fá allt að því fanatíska umönnun sem kristallast í því að uppskeran er aðeins á bilinu 5 til 15 hektólítrar per hektara sem jafnast á við sum bestu og dýrustu vín Frakklands. Enda á vínið fyllilega skilinn sess í þeim flokki.


Rauðvín



.
"But then of course Cassis tastes better at Cassis! Debussy sounds better after a walk through the foggy, puddled streets of latenight Paris. You are in the midst of the atmosphere that created it. The wine is not different, the music is not different. You are."
- Kermit Lynch