El Seque
  • Svæði: Alicante
  • Eigandi: Artadi víngerðin (Juan Carlos Lopes de la Calle)
  • Stofnað: 1999
  • Framleiddar flöskur: 30.000
  • Hektarafjöldi: 40
  • Hlutfall eigin þrúga af heildarframleiðslu: 100%

Artadi víngerðin í Rioja eignaðist þessar 40 vínekrur í Alicante fyrir nokkrum árum síðan og framleiddi fyrsta árganginn 1999. Aðalþrúgan er Mourvèdre (á spænsku Monastrell) og tekur hún vel við hinni miklu sól og þurrki á svæðinu. Nauðsynleg kæling berst frá hafinu sem ekki er svo langt frá og vegna þess einfaldlega hversu hátt vínekrurnar liggja í 600m meðalhæð. Öfgar í veðurfari (það er t.d. kalt á veturna og um nætur) og snauður jarðvegur heldur uppskeru niðri á sinn náttúrulega hátt og úr lítilli uppskeru koma gæðaþrúgur.

Aðeins tvö vín eru framleidd, bæði rauð. Artadi víngerðin er einhver mest spennandi og heitasta víngerð á Spáni um þessar mundir og þótt höfuðstöðvarnar séu í Rioja er Artadi höndin vel merkjanleg í vínunum frá El Seque. Virðing fyrir náttúrunni og sterkum hefðum er í fyrirrúmi, ekki endilega hefðum síðustu ára eða áratuga heldur þeim sem eiga sér jafnvel ennþá dýpri rætur.



Rauðvín



"Því miður er almenn vínmenníng hérlendis á því ómenníngarstigi, að fyrir þá sök eina er ekki með sanngirni hægt að telja íslendinga meðal siðaðri þjóða einsog er."

- Halldór Laxness