Fontodi
  • Svæði: Chianti Classico í Toscana
  • Eigandi og víngerðarmaður: Giovanni Manetti
  • Ráðgjafi: Franco Barnabei
  • Stofnað: 1968
  • Framleiddar flöskur: 300.000
  • Hektarafjöldi: 222 þar af 67 af vínviði
  • Hlutfall eigin þrúga af heildarframleiðslu: 100%
  • Vefur: www.fontodi.com

Fontodi hefur verið kallaður af Wine Spectator “besti framleiðandi Chianti Classico ár eftir ár” og ekki af ástæðulausu.

Ef einhvern tímann verður tekið upp kerfi á Ítalíu sem flokkar vínekrur eftir gæðum, sbr. hið franska “grand cru”, “premier cru” o.s.frv., þá yrðu vínekrurnar í hlíðinni suður af bænum Panzano settar í hæsta gæðaflokk Chianti Classico svæðisins.  Hlíðin er kölluð Conca d’Oro þ.e. “Gullna skálin” og er nánast að öllu leyti í eigu Fontodi.  Þótt aðrir framleiðendur í kringum Panzano hafa viljað bendla sig við þessa frægu hlíð liggja vínekrur þeirra í raun fyrir utan.  Hlíðin er skeifulaga, svona eins og áhorfendasvalir í óperuhúsi frá 18.öld – Ítalir eiga fallegt nafn fyrir þessa lögun “amfiteatro”.

Conca d’Oro nýtur mikillar sólar og í þessari hæð, u.þ.b. 400 m. yfir sjávarmáli, er sömuleiðis nægileg úrkoma.  Þegar rignir situr bleytan þó aldrei of lengi í jarðveginum því hann er laus í sér og þornar hratt.  Jarðvegurinn er snauður af næringu og því þurfa ræturnar að hafa mikið fyrir því að teygja sig langt niður í jörðina sem skilar sér í fyrsta flokks, kraftmiklum vínvið.  

Manetti fjölskyldan framleiðir terracotta sem er m.a. notaður í húsþök Flórensborgar og nágrennis.  1968 keypti fjölskyldan Fontodi landareignina og 30 árum síðar var byggð fullkomin aðstaða til framleiðslu og geymslu á víni sem byggir á þyngdarlögmálinu: þrúgurnar eru keyrðar efst upp að húsinu þar sem þær eru pressaðar og rennur safinn sjálfur niður á næsta þrep þar sem vínið er látið gerjast þaðan sem hann rennur að lokum ofaní eikartunnurnar í kjallaranum, m.ö.o. engar dælur eru notaðar til að þrýsta víninu áfram.  Allt saman mjög fullkomið og tæknivætt en umhyggjan fyrir náttúrunni endurspeglast í 100% lífrænni framleiðslu.  Eiginlega gæti Manetti fjölskyldan lifað góðu lífi á Fontodi landareigninni án samskipta við umheiminn því hún ræktar allar helstu nauðsynjar m.a. Chianina nautgripi sem veita bæði fæðu og áburð.

Eitthvað voru forfeður okkar Íslendinga að þvælast á þessum slóðum um 500 e.kr. því að nafnið Fontodi þýðir “Gosbrunnur Óðins”.

 


View Vínframleiðendur á Ítalíu in a larger map


Rauðvín

Sangiovese, 3.890 kr.

Sangiovese, 8.900 kr. 


Sætvín

Sangiovese og Malvasia, 3.390 kr.




 


"It was with a delicious feeling of lightheadedness and supreme contentment that, in the late afternoon, I paid my bill, bid an affectionate farewell to M. Point, and went out into the garden."
- Joseph Wechsberg