Foradori
  • Svæði: Trentino
  • Eigandi: Elisabetta Foradori
  • Stofnað: 1939 
  • Framleiddar flöskur: 200.000 
  • Hektarafjöldi: 28
  • Hlutfall eigin þrúga af heildarframleiðslu: 100%
  • Vefur: www.elisabettaforadori.it
Elisabetta Foradori er ung, einstæð fjögurra barna móðir sem hefur vakið mikla athygli fyrir að búa til merkileg vín úr sjaldgæfri þrúgu.  Teroldego þrúgan vex óvíða annars staðar en í Trentino héraðinu, nyrst á Ítalíu, þar sem hún dafnar og blómstrar á Campo Rotaliano sléttunni milli hrikalegra kletta Dólómítanna. 

Elisabetta er ástríðumanneskja af lífi og sál.  Hún sinnir öllum hliðum þessa litla fjölskyldufyrirtækis, er víngerðarmaður þess, kynningarfulltrúi og framkvæmdastjóri þess á milli sem hún klífur eftir hlíðum nærliggjanda tinda og elur upp börnin fjögur.  Það þarf ákveðna þrjósku, drif og einurð til að tileinka líf sitt þrúgu sem nánast enginn þekkir.  En trúin er sterk og útkoman sömuleiðis. Nafn Foradoris er alltaf nefnt fyrst þegar fjallað er um bestu Teroldego framleiðendur Trentino og hefur vín hennar Granato fengið hæstu einkunn Gambero Rosso, þrjú glös (Tre Bicchieri), á hverju einasta ári.  Um hana hefur líka verið fjallað á síðum Wine Spectator sem eins af áhugaverðust ungu framleiðendum Ítalíu.  Elisabetta lætur sér ekki nægja að rækta og selja Teroldego þrúguna heldur hefur hún eytt tíma í að rannsaka sögu og uppruna þrúgunnar í samstarfi við vísindamenn á borð við Attilio Scienza.

 


View Vínframleiðendur á Ítalíu in a larger map

Rauðvín

Teroldego, 2.290 kr.




 


"It was with a delicious feeling of lightheadedness and supreme contentment that, in the late afternoon, I paid my bill, bid an affectionate farewell to M. Point, and went out into the garden."
- Joseph Wechsberg