Í þeim hafsjó fjöldaframleiddra vörumerkjavína og risavínsamsteypa sem Ástralir eru svo frægir fyrir fer hópur lítilla, metnaðarfullra fyrirtækja sívaxandi. Eigendur þeirra rækta þrúgurnar sjálfir, framleiða sjálfir úr þeim vín og setja þau sjálfur á flöskur undir eigin merki. Þeir þekkja hvern blett á vínekrunum, skilja hvernig hann hegðar sér og vita hvernig hámarka megi möguleikana sem í honum búa. Vínið í flöskunni er túlkun þeirra byggð á þessari þekkingu. Þeir stunda þá tegund gæðavínræktar sem óhjákvæmilega leiðir til hærri framleiðslukostnaðar og sem á ekkert slíkt við vörumerkjavín. Einn þeirra er Kay Brothers í McLaren Vale um 40 km suður af borginni Adelaide.
Kay Brothers var stofnað árið 1890 og er enn lítið fjölskyldufyrirtæki. Þeir sérhæfa sig í þrúgunni Shiraz og virðast ná eins langt með hana og unnt verður komist. Vínin Block 6 Shiraz 2001 og Hillside Shiraz 2001 eru full af karakter og "terroir", þ.e. ekki bara ávaxtasprengjur, sem þau vissulega eru, heldur skynjar maður jarðveginn og uppruna þeirra með tilheyrandi myntu, mold, tóbaki og villijurtum.
Smökkunarteymi Víns og Matar átti erfitt með að gera upp á milli þessara tveggja vína, sumir hölluðust meira á eitt en aðrir á hitt. Eitt voru menn þó sáttir um, vínin eru hverrar krónu virði og eiga langt farsælt líf fyrir höndum. Betri samherja með villibráðinni er vart hægt að hugsa sér.