La Spinetta
  • Svæði: Piemonte
  • Eigandi: Rivetti bræður
  • Stofnað: 1977
  • Framleiddar flöskur: 450.000
  • Hektarafjöldi: 100 í Piemonte og 65 í Toscana
  • Hlutfall eigin þrúga af heildarframleiðslu: 100%
  • Vefur: www.la-spinetta.com

La Spinetta víngerðin er reist á gömlum draumi manns sem hélt til Argentínu í lok 19. aldar til þess að græða pening og snúa aftur til Ítalíu ríkur og voldugur maður. Hann gerði það þó ekki heldur kom það í hlutverk sonar hans Giuseppe að láta drauminn rætast.

Giuseppe keypti Moscato vínekrur í nágrenni Asti sannfærður um að hægt væri að gera gæðavín úr þessari hvítvínsþrúgu sem að alla jafnan var þess ekki vön. Honum tókst það, hann gerði nokkur Moscato d’Asti vín hver frá sinni vínekrunni og var fyrstur manna til að gera slík einnarekruvín á svæðinu.  

Nú er þriðja kynslóðin tekin við völd hjá La Spinetta, bræðurnir Carlo, Bruno og Giorgio. Þótt enn séu framleidd þar tvö einnarekru-Moscato d’Asti vín (um 40% af heildarframleiðslunni) þá eru það rauðvínin sem bræðurnir byrjuðu að fikta við sem skotið hafa þeim upp á stjörnuhiminn. Þrjú Barbaresco vín úr Nebbiolo þrúgunni eru framleidd, hvert frá sinni vínekrunni eins og Moscato vínin og önnur þrjú úr Barbera.

Það sýnir hæfileika Rivetti bræðranna að Barolo vínið Le Campe sem þeir hófu framleiðslu á frá og með 2000 árgangi skipaði sér samstundis sess meðal bestu Barolo vína með einkunnir eins og 98/100 frá bandaríska víntímaritinu Wine Spectator. Rauðvínin frá La Spinetta er einhver þau eftirsóttustu frá Piemonte héraði.

Nýlega keypti svo víngerðin vínekrur í Toscana og eru fyrstu árgangarnir rétt byrjaðir að líta dagsins ljós.

 

 
View Vínframleiðendur á Ítalíu in a larger map


Rauðvín

Nebbiolo, 8.000 kr.

Nebbiolo, 8.000 kr.

Nebbiolo, 8.000 kr.

Barbera, 2.390 kr.

Barbera, 3.400 kr.

Nebbiolo, 8.000 kr.

Pin
Nebbiolo og Barbera, 6.823 kr.


Hvítvín

Moscato, 1.963 kr.



La Spinetta er annar ítalskra framleiðanda til að hljóta 30 sinnum eða oftar TRE BICCHIERI. Lestu meira
 


"Því miður er almenn vínmenníng hérlendis á því ómenníngarstigi, að fyrir þá sök eina er ekki með sanngirni hægt að telja íslendinga meðal siðaðri þjóða einsog er."

- Halldór Laxness