Lini
  • Svæði: Emilia-Romagna
  • Eigandi: Lini fjölskyldan
  • Stofnað: 1910
  • Framleiddar flöskur: 300.000
  • Hektarafjöldi:
  • Hlutfall eigin þrúga af heildarframleiðslu:
  • Vefur: www.lini910.it

Við erum oft spurð að því hvernig við finnum okkar framleiðendur en svörin eru mismunandi. Lini framleiðandann þekktum við ekki fyrr en nýlega en þá höfðum við allt frá stofnun Víns og matar haft það á döfinni að flytja inn Lambrusco frá góðum framleiðanda sem gerði þurrt Lambrusco eftir hefðinni en ekki fjöldaframleiddan, áfengan djús. Ekta Lambrusco er nefnilega svo gott og frísklegd, ekki bara sumarvín heldur sérstaklega sniðugt til að lyfta upp þungum og feitum mat um haust og vetur.

Lini er ekki sá eini sem uppfyllir þetta skilyrði jafnvel þótt Lambrusco hafi haft á sér stimpil utan Ítalíu í gegnum síðustu áratugi að vera eitthvað ómerkilegt. Þar (Emilia-Romagna héraðið) eins og annars staðar er alltaf hægt að finna framleiðendur sem gera metnaðarfull vín. Slík vín voru bara ekki að rata mikið út fyrir Ítalíu því ímynd Lambrusco var víðast orðin of lituð af áfenga djúsnum sem fluttur var út í tug-milljónavís (stæsti framleiðandinn seldi árið 1985 meira en 100 milljón flöskur til Bandaríkjanna einna) þótt hann geti verið ágætur fyrir t.d. byrjendur í léttvínum.

Nafn Lini framleiðandans fundum við á radarnum hjá ýmsum vínbúðum og netmiðlum, sérstaklega í New York, þar sem gæða-Lambrusco hafa fundið sér sess í dýnamísku vínlandslagi borgarinnar. Allir voru á einu máli, Lambrusco frá Lini eru ekki bara framleidd samkvæmt hefðinni heldur teljast í hóp þeirra fremstu sem það gera. Við athuguðum málið, hittum framleiðandan yfir glasi á vínsýningunni í Veróna og lýstum yfir hrifningu okkar sem var síðan fylgt eftir með fyrstu pöntun nokkrum vikum síðar.

Loksins, loksins, loksins, segjum við á þessum bæ, eftir að hafa haldið niðri í okkur andanum í þessari löngu bið eftir að flytja inn gott Lambrusco víni og uppfyllt þar með eitt af markmiðum fyrirtækisins sem við settum okkur í upphafi.

Lini er fjölskyldufyrirtæki, lítið á mælikvarða Lambrusco framleiðenda og mjög lifandi með nýja kynslóð Lini-meðlima í fararbroddi.  

 

 
View Vínframleiðendur á Ítalíu in a larger map


Freyðvín

Lambrusco Salamino, Lambrusco Grasparossa og Ancellotta, 2.289 kr.

Lambrusco Salamino og Lambrusco Sorbara, 2.289 kr.

Lambrusco Salamino og Lambrusco Sorbara, 2.289 kr.

Lambrusco Salamino og Lambrusco Ancellotta, 2.289 kr.


Smelltu til að skoða viðtal við Alicia Lini sem var tekið á Vinitaly vínsýningunni í Veróna.

Hér má líka hlusta á útvarpsviðtal við hana sem var tekið af útvarpsstöð í New York.


"It was with a delicious feeling of lightheadedness and supreme contentment that, in the late afternoon, I paid my bill, bid an affectionate farewell to M. Point, and went out into the garden."
- Joseph Wechsberg