Lucien Le Moine
  • Svæði: Búrgúnd
  • Eigandi: Mounir Saouma og Rotem Brakin
  • Stofnað: 1999
  • Framleiddar flöskur: 15-25.000
  • Hektarafjöldi: x
  • Hlutfall eigin þrúga af heildarframleiðslu: Allar þrúgur aðkeyptar
  • Vefur: www.lucienlemoine.com

Hjónin Mounir og Rotem eiga engar vínekrur heldur framleiða allt sitt vín í samstarfi við vínekrueigendur hér og þar á Côte de Nuits svæðinu í Búrgundarfylki (Bourgogne). Þau framleiða margar ólíkar tegundir af nánast öllum bestu svæðunum en hverja tegund í pínulitlu magni, stundum einungis 300 flöskur.

Sá er framleiðir vín með aðkeyptum þrúgum kallast í Frakklandi "negociant" þótt micro-negociant eða boutique-negociant væru réttari heiti fyrir smáa framleiðslu hjónanna.

Gæðin hér eru afskaplega mikil enda velur Mounir og stýrir framleiðslu bændanna af mikilli kostgæfni. Hann kaupir síðan nýpressað og gerjað vínið en þroskar það sjálfur og setur í flöskur í þeirra eigin vínhúsi í Beaune. Þar heldur stíft gæðaferlið áfram sem lýsir sér m.a. í því að engar pumpur er nokkurn tímann notaðar til að dæla víninu heldur er notast við þyngdarlögmál né eru vínin sigtuð eða síuð.

Fyrir utan tvö Bourgogne vín, rautt og hvítt, eru öll vínin frá Lucien Le Moine Premier Cru og Grand Cru.

Það er mikilvægt að geyma vínin þeirra við bestu aðstæður, forðast t.d. mikinn hita, og segir Mounir að nauðsynlegt sé að umhella þeim öllum fyrir neyslu, bæði rauðum og hvítum, til að losna við náttúrulegan CO2 úr flöskunni.


View Vínframleiðendur í Frakklandi in a larger map


Rauðvín

Pinot Noir, 3.290 kr.


Hvítvín

Chardonnay, 3.290 kr.


- - -

Við flytjum auk þess inn ýmis Premier og Grand Cru vín frá Lucien Le Moine, bæði rauð og hvít. Sendu okkur tölvupóst á vinogmatur@vinogmatur.is til að fá allan listann.


Hér má skoða sjónvarp frá heimsókn okkar til vínframleiðenda í Frakklandi haustið 2008 (Le Moine byrjar 6:29).


"Því miður er almenn vínmenníng hérlendis á því ómenníngarstigi, að fyrir þá sök eina er ekki með sanngirni hægt að telja íslendinga meðal siðaðri þjóða einsog er."

- Halldór Laxness