Portúgal er þekktast í hugum okkar Íslendinga fyrir Portvín frekar en nokkuð annað en vínflóran er hins vegar jafn fjölbreytileg þar eins og í öðrum löndum S-Evrópu.
Þekktustu hvítvín landsins, Vinho Verde, koma frá norðuhluta landsins og er Melgaço víngerðin leiðandi í framleiðslu slíkra vína. Vinho Verde vínin eru ávallt létt og fersk, fölgul með örlitlum loftbólum til að ýta undir ferskleikann.
Víngerðin kemur frá samnefndu héraði, Melgaço, nyrsta héraði Portúgals, nánast á landamærum Spánar. Þetta er samyrkjubú með yfir 400 hluthöfum sem leggja inn vínber sín að hausti og sameinast í framleiðsluferlinu.