Louis Barruol er einn af þessari nýju kynslóð víngerðarmanna í Frakklandi sem tekið hafa við góðu búi af foreldum sínum af þeirri ábyrgð og ástríðu sem er nauðsynleg til að gera enn betur. Louis var ekki fyrr kominn með víngerðina í sínar hendur árið 1992 að hann hóf að bæta og betrumbæta í jákvæðum skilningi.
Víngerðin er í Gigondas og þaðan koma samnefnd rauðvín fyrirtækisins en Louis er þakkað að hafa aukið orðspor svæðisins með metnaði sínum. Það liðu ekki nema nokkur ár þar til að hann stofnaði negociant hlið fyrirtækisins sem kaupir vín af bændum í nágrenninu og setur á flöskur í nafni Saint Cosme undir hans smásjá. Honum blöskraði vannýttar vínekrur sem hann sá víða í héraðinu og var knúinn til að gera eitthvað í þv
í.
Í dag framleiðir Saint Cosme víngerðin 450.000 flöskur í Rónarhéraði, frá Gigondas í suðri til Côte-Rôtie í norðri. Splúnkunýr vínkjallari hefur verið tekinn í notkun til að rýma vaxandi víngerðina.
Vínviðurinn er víða gamall, meðalaldur í Gigondas er t.d. um 60 ár, og gefur það vínunum dýpri og flóknari karakter. Hér er það Grenache þrúgan sem ræður ríkjum, sérstaklega í S-Rón. Eikartunnur eru notaðar sparlega og vínin eru fínleg á yfirborðinu og ilmrík eins og fáguð Búrgúndarvín.

Rauðvín
Hvítvín
Vínin frá Saint Cosme hafa hlotið frábæra umfjöllun undanfarin ár. Lestu meira
Hér er líka hægt að skoða kvikmyndir af víngerðinni