San Michele Appiano
  • Heiti á þýsku: St. Michael Eppan
  • Svæði: Alto Adige/Südtirol
  • Eigandi: Samyrkjubú, 350 meðlimir
  • Víngerðarmaður: Hanz Terzer
  • Stofnað: 1907
  • Framleiddar flöskur: 2.500.000
  • Hektarafjöldi: 355 af vínviði
  • Framleiðsla: 62% hvítvín, 38% rauðvín
  • Vefur: www.stmichael.it

Í Alto Adige taka Alparnir undir sig bróðurpartinn af landssvæðinu.  Lítið land er eftir til vínræktar sem deilist á marga bændur og því hver skiki oft svo lítill að ómögulegt er að starfa sjálfstætt.  Langflestir vínbændur sjá sér betur borgið með því að gerast meðlimir hjá einhverju samyrkjubúinu (co-op) og selja þrúgurnar þangað eftir að þær hafa verið týndar. 

Hjá San Michele Appiano, samyrkjubúinu í bænum Appiano/Eppan, er meðalstærð landsvæðis undir vínvið hjá hverjum vínbónda einungis 1 hektari.  Flestir eru þeir í kringum bæinn en það er þó ekki skilyrði.  Bændurnir sjá um alla vinnuna á vínekrunni en þegar þrúgan er komin í hús taka starfsmenn fyrirtækisins við.  Bændurnir fá greitt eftir tegund þrúgu, staðsetningu og síðast en ekki síst eftir gæðum.  Þannig sjá bændur sér hag í því að rækta sem besta þrúgu til að fá topp verð.  Fyrirtækið getur hafnað þrúgum og skikkað bændur til að betrumbæta vínekrur, endurplanta o.s.frv., vilji þeir halda samstarfinu áfram, og veitir til þess viðeigandi ráðgjöf.

Þrúgur frá hverri vínekru sérhvers bónda, fyrir betri vín fyrirtækisins, eru gerjaðar sér sem þýðir að nauðsyn er á gríðarlega mörgum og oft litlum gerjunartönkum því skikarnir eru svo margir og litlir.  Þegar því er lokið er loksins hægt að endurmeta gæði afurðar hvers skika og framkvæma blönduna fyrir viðkomandi vín með það fyrir augum að viðhalda karakter og hámarka gæði.

San Michele Appiano hefur verið leiðandi síðustu ár í Alto Adige og er það ekki síst aðalvíngerðarmanninum Hanz Terzer að þakka.  Appiano var valinn vínframleiðandi ársins 2000 hjá Gambero Rosso og Hanz af því tilefni kjörinn einn af 10 bestu víngerðarmönnum… í heimi.  Svo mikið aðdráttarafl hefur fyrirtækið að 8% framleiðslunnar er seldur á staðnum í þeirra eigin verslun, jafnt til heimamanna sem ferðamanna.



View Vínframleiðendur á Ítalíu in a larger map

v

Rauðvín

Pinot Noir, 2.490 kr.

Pinot Nero, 3.690 kr


Hvítvín

Gewürztraminer, 2.190 kr.

Gewürztraminer, 3.190 kr.




 


"Always do sober what you said you'd do drunk. That will teach you to shut your mouth."
- Hemingway