Vincent Girardin
  • Svæði: Búrgúnd
  • Eigandi: Vincent og Veronique Girardin
  • Stofnað: Frá 1982 starfar Vincent sjálfstætt
  • Framleiddar flöskur: 500.000
  • Hektarafjöldi: 20 í eigin eigu
  • Hlutfall eigin þrúga af heildarframleiðslu: 1/3
  • Vefur: www.vincentgirardin.com

11 kynslóðir af Girardin fjölskyldumeðlimum hafa ræktað og framleitt vín við bæinn Santenay í Búrgúnd. 22 ára gamall fékk Vincent Girardin hluta af vínekrum föður síns, 3 hektara, 1982 en hefur síðan bætt við sig jafnt og þétt, m.a. vínekrum í Puligny Montrachet og Chassagne Montrachet.

Nú er fyrirtækið staðsett í splúnkunýrri víngerð í bænum Meursault og framleiðir vín af eigin vínekrum auk þess að stunda svokallaða negociant starfssemi sem þau hafa gert síðan 1994 og felst í því að kaupa þrúgur af bændum og framleiða undir eigin merki, nokkuð sem er mjög algengt í Búrgúnd. Portfólían er því breið og spannar allt frá léttari Bourgogne vínum til þungavigtar-Grand Cru vína.

Það sem er einkennir vínin frá Vincent Girardin er mýkt og aðgengileiki, jafnvel þegar þau eru enn ung.

 


View Vínframleiðendur í Frakklandi in a larger map


 

Við flytjum inn ýmis Premier og Grand Cru vín frá Vincent Girardin, bæði rauð og hvít. Sendu okkur tölvupóst á vinogmatur@vinogmatur.is til að fá allan listann.


Hér má skoða sjónvarp frá heimsókn okkar til vínframleiðenda í Frakklandi haustið 2008 (Girardin byrjar 5:58).

"The consistency of these wines is astonishing, given the Burgundy region's historical unreliability, with even the most modest AOC amply meriting a punt." - Andrew Jefford (The New France)


"I think it is a great error to consider a heavy tax on wines as a tax on luxury. On the contrary, it is a tax on the health of our citizens."
- Thomas Jefferson