Keller
  • Svæði: Rheinhessen
  • Eigandi: Klaus Keller
  • Stofnað: 1789
  • Framleiddar flöskur: 100.000
  • Hektarafjöldi: 15
  • Hlutfall eigin þrúga af heildarframleiðslu: 100%
  • Vefur: www.keller-wein.de

 

Klaus Keller yngri er einhver metnaðfyllsti framleiðandi Þýskalands. Viðurkenningar eins og "Besti framleiðandi ársins í Þýskalandi" og "Besti framleiðandi áratugarins í Þýskalandi" sanna það. Í þýsku vínbiblíunni Gault Milleu fær enginn framleiðandi eins mörg gull og hann.

Þessar framúrskarandi viðurkenningar eru ennþá einstakari fyrir það að Weingut Keller er í Rheinhessen héraðinu þar sem einhver verstu vín landsins eru fjöldaframleidd, vín sem komið hafa óorði á þýska vínrækt.

Riesling er aðalþrúgan og úr henni eru framleidd ávaxtarík hvítvín sem geta verið brakandi þurr, dísæt og allt þar á milli. Sama hversu ávaxtarík vínin verða eru þau alltaf með áberandi undirliggjandi steinefnum og ferskri sýru sem gerir það að verkum að það er svo glettilega gott að drekka þau.

Ég hitti Klaus yngri og Juliu, eiginkonu hans, í Þýskalandi og kom mér á óvart hversu ótrúlega ung þau eru. Þau voru full af lífsorku og gleði og ástríðan fyrir vínræktinni fór ekki fram hjá neinum.


Hvítvín


 


 


.
"But then of course Cassis tastes better at Cassis! Debussy sounds better after a walk through the foggy, puddled streets of latenight Paris. You are in the midst of the atmosphere that created it. The wine is not different, the music is not different. You are."
- Kermit Lynch