Luciano Sandrone
  • Svæði: Barolo í Piemonte
  • Eigandi: Luciano Sandrone
  • Stofnað: 1989
  • Framleiddar flöskur: 100.000
  • Hektarafjöldi: 20
  • Hlutfall eigin þrúga af heildarframleiðslu: 100%
  • Vefur: www.sandroneluciano.com

Luciano Sandrone var kjallaramaður hjá þekktum, stórum framleiðanda í Barolo þegar hann keypti sér sína fyrstu vínekru í Cannubi. 1981 fór Sandrone með fyrsta árganginn, 1978, á Vinitaly í Verona þar sem amerískur heildsala keypti upp 1.500 flaska lagerinn og nafnið Sandrone hóf flug upp á stjörnuhiminn.

Í Barolo þar sem nýi og gamli skólinn hafa togast á síðustu árin hefur Sandrone fetað hinn gullna meðalveg, fyrir honum vakir einfaldlega að búa til sem best vín og þá skiptir einu hvort aðferðirnar eru nýjar eða gamlar. Hann notar franskar eikartunnur eins og margir af nýja skólanum en kýs frekar 500l. tunnur frekar en 250l. því þær gefa víninu vægari eikarblæ og notar eingöngu óristaðar frekar en ristaðar tunnur af sömu ástæðu. Eikin hjá Sandrone er nefnilega í bakgrunni frekar en forgrunni, hún styður við vínið en ekki öfugt.

Víngerðin er ný, rúmgóð, hrein eins og skurðstofa, og tæknilega fullkomin með þyngdarlögmálskerfi þar sem þrúgur er pressaðar efst þaðan sem þær renna niður á hæðina fyrir neðan til gerjunar og að lokum ofan í eikartunnur í kjallaranum. Vínkjallarinn er eins konar hús í húsi, u.þ.b. 1m. er á milli innveggja kjallarans og útveggja hans svo náist fullkomnlega jafnt hitastig.

Vín & Matur er afar stoltur af því litla magni sem honum er skammtað af Luciano Sandrone vínum á hverju ári. Hann er leiðandi framleiðandi í Barolo og eftirsóttur um allan heim af vínsöfnurum og betri veitingastöðum — svo eru flöskurnar líka flottar.

 

 
View Vínframleiðendur á Ítalíu in a larger map


Rauðvín

Barbera, 4.425 kr. 

Nebbiolo, 13.500 kr.

Nebbiolo, 12.900 kr.

Dolcetto, 2.999 kr.




 


"Always do sober what you said you'd do drunk. That will teach you to shut your mouth."
- Hemingway