Vínið hefur meiri klassa en Poggio Belvedere án þess þó að glata þeim þokka og ferskleika sem það vín hefur. Þetta vín jafnast á við bestu Chianti Classico vín að stíl og gæðum. Þroskaferlið er 15 mánuðir, fyrst 12 mánuðir til helminga í stórum slóvenskum eikartunnum og frönskum eikartunnum og loks 3 mánuðir í flösku áður en það er sett á markað. Vínið er dökkt og massíft en elegant umfram allt. Í munni vottar fyrir spriklandi sítrussýru sem hjálpar víninu frekar að verða gott matarvín, helst rauðu kjöti og góðum ostum eins og parmeggiano.
Arnaldo Caprai
Síðan Marco Caprai tók yfir stjórn fyrirtækisins af föður sínum Arnaldo hefur hróður fyrirtækisins og Sagrantino vínsvæðisins vaxið gríðarlega. Vísindi, fagmennska og ástríða skila sér í vínum sem hlotið hafa óskipta aðdáun ítölsku og erlendu pressunnar.
Rauðvín
Hvítvín