Caprai fjölskyldan framleiðir tvö hvítvín og er þetta hið dýra. Ilmurinn er afskaplega ferskur og lokkandi, perubrjóstsykur og sítrúskeimur í bland við hvít blóm með daufum sætuvotti af þroskuðum ferskjum. Í munni er það svo lifandi að maður lifnar við og vill fá að borða. Góð fylling, þétt og lifir lengi með áberandi pipareftirbragði. Þar sem þetta er allþétt vín, þótt óeikað sé, þá getur það vel tekist á við bragðmeiri fiskrétti og ljóst kjöt auk þess sem ég sé fyrir mér að ýmis konar grænmetisréttir njóti sín vel með þessu víni.
Hvað segja bloggarar um þetta vín?
91 stig "Tilvalið með flestu" Mbl. Lestu dóminn
[2005]
91 stig "einstaklega fágað og fókuserað" Mbl. Lestu dóminn
4 glös "Gimsteinn frá Ítalíu" Gestgjafinn. Lestu dóminn
Arnaldo Caprai
Síðan Marco Caprai tók yfir stjórn fyrirtækisins af föður sínum Arnaldo hefur hróður fyrirtækisins og Sagrantino vínsvæðisins vaxið gríðarlega. Vísindi, fagmennska og ástríða skila sér í vínum sem hlotið hafa óskipta aðdáun ítölsku og erlendu pressunnar.
Rauðvín
Hvítvín