Nýtt rauðvín frá Arnaldo Caprai með frumlegum miða sem minnir á frímerki og flipa aftan á flöskunni sem auðvelt er að rífa af ef maður vill geyma nafnið og taka með sér í næstu vínbúðarferð. Einnig er fáanlegt systur-hvítvín með sama nafni, Anima Umbra, úr Grechetto þrúgunni og á sama verði. Eins og "anima Umbra" gefur til kynna er vínunum ætlað að fanga anda Úmbría héraðsins í flösku svo við hérna á fróni getum upplifað hann um stund og í því skyni notar Caprai eingöngu staðbundnar þrúgur og framleiðsluaðferðir sem best endurspegla karakter héraðsins. Þurrt vín og jarðbundið.
"Passar vel með öllu þó kannski ekki soðinni ýsu" Amman hans Guffa
"Mamma segir það áleitið vín... " Helga Þórey bloggar um Anima Umbra Rosso
Arnaldo Caprai
Síðan Marco Caprai tók yfir stjórn fyrirtækisins af föður sínum Arnaldo hefur hróður fyrirtækisins og Sagrantino vínsvæðisins vaxið gríðarlega. Vísindi, fagmennska og ástríða skila sér í vínum sem hlotið hafa óskipta aðdáun ítölsku og erlendu pressunnar.
Rauðvín
Hvítvín