Nýtt hvítvín frá Arnaldo Caprai með frumlegum miða sem minnir á frímerki og flipa aftan á flöskunni sem auðvelt er að rífa af ef maður vill geyma nafnið og taka með sér í næstu vínbúðarferð. Einnig er fáanlegt systur-rauðvín með sama nafni, Anima Umbra, og á sama verði. Eins og "anima Umbra" gefur til kynna er vínunum ætlað að fanga anda Úmbría héraðsins í flösku svo við hérna á fróni getum upplifað hann um stund og í því skyni notar Caprai eingöngu staðbundnar þrúgur og framleiðsluaðferðir sem best endurspegla karakter héraðsins. Ferskt vín og aðgengilegt með tónum af peru, melónu og sítrus.
Arnaldo Caprai
Síðan Marco Caprai tók yfir stjórn fyrirtækisins af föður sínum Arnaldo hefur hróður fyrirtækisins og Sagrantino vínsvæðisins vaxið gríðarlega. Vísindi, fagmennska og ástríða skila sér í vínum sem hlotið hafa óskipta aðdáun ítölsku og erlendu pressunnar.
Rauðvín
Hvítvín