Rósavín stíga dans á milli eiginleika rauðvína og hvítvína og geta því verið fjölhæf matarvín þegar vel tekst til. Artazuri er þannig vín. Liturinn minnir á rifsberjasaft með bleikum undirtóni. Í nefi eru yndisleg jarðaberjaangan mest áberandi með tónum af appelsínuberki, basíliku og svolítilli sætu en í munni er vínið þurrt. Einfalt en virkilega flott rósavín sem gengur með nánast hvaða mat sem er. Lifandi og ferskt vín sem hleypir lífi í æðarnar. Svona hljóta rósavín að eiga vera búin til.
[2004]
89/100 "gorgeous rose" Robert Parker.
Juan Carlos framleiðir heillandi vín úr Grenache þrúgunni í skjóli Pýraneafjallanna.
Rauðvín
Rósavín