Bisceglia leitar til nágrannahéraðs síns Puglia þar sem hann gerir samning við bændur um framleiðslu vínsins. Þrúgan í víninu er ein af þessum skemmtilegu suður-ítölsku rauðvínsþrúgum, Primitivo, og má finna sterk einkenni hennar í víninu með sína áberandi sveitatóna í bland við miðlungsþéttan ávöxt. Vínið er ekki sett í eikartunnur og því kjörið tækifæri fyrir þá sem vilja upplifa karakter þrúgunnar og héraðsins á sem "hreinastan" hátt. Flott með lambi.
Bisceglia
Lífrænn landbúnaður og metnaður Mario Bisceglia færa okkur ekta s-ítölsk vín, engar bombur heldur fersk og góð matarvín.
Rauðvín
Hvítvín