Hér sækir Bisceglia til nágrannahéraðs síns, Campania, kaupir þrúgur og framleiðir vín með sínum hætti.
Flott suður-ítalskt hvítvín með suðrænum ávöxtum í nefi eins og melónu, ananas o.þ.h. Fylling í munn góð og snörp sýra sér um að viðhalda ferskleika og gera vínið afbragðs matarvín.
4 stjörnur "Hreinlega dúndurgott" Vínótek. Lestu meira
3 1/2 glas "þétt ávaxtaveisla" Gestgjafinn. Lestu meira
Bisceglia
Lífrænn landbúnaður og metnaður Mario Bisceglia færa okkur ekta s-ítölsk vín, engar bombur heldur fersk og góð matarvín.
Rauðvín
Hvítvín