Soave San Michele
Soave Classico D.O.C.
  • árgangur: 2008
  • þrúga: Garganega
  • svæði: Veneto
  • verð: 2.597
  • fæst í Kringlunni, Heiðrúnu og Skútuvogi

Tessari fjölskyldan er þekkt fyrir að vera einn þeirra framleiðenda sem hafa endurbætt ímynd Soave hvítvína en þau voru komin í óefni sökum lélegra gæða og fjöldaframleiðslu. Soave San Michele er sannarlega vel gert hvítvín sem einkennist af hinum dæmigerða ferskleika góðra, ítalskra hvítvína. Ætlað til að njóta með mat eða sötra á meðan maður er að kokka í pottunum. Það er ekki þungt eða þykkt heldur ljúft með þægilegum, blómkenndum ilmi sem flytur mann út á engi einhvers staðar á Norður-Ítalíu. Ávöxturinn er sítruskenndur með vott af perum og melónu og eftirbragð þurrt og minnir svolítið á furuhnetur. Að öllu leyti óeikað vín sem hentar sem fordrykkur eða með hvers slags léttum pasta og fiskréttum. 

4 glös "karakterríkt og flott Soave" Gestgjafinn. Lestu dóminn

Til baka

Ca Rugate
Tessari fjölskyldan framleiðir frískleg Soave hvítvín og Valpolicella rauðvín í hjarta Veneto héraðsins.

Meira um framleiðandann

 



Rauðvín

Corvina, Rondinella og Corvinone, 2.597 kr.

Corvina, Rondinella og Corvinone, 3.998 kr.


Hvítvín

Garganega, 2.790 kr.

Garganega, 2.597 kr.



"It was with a delicious feeling of lightheadedness and supreme contentment that, in the late afternoon, I paid my bill, bid an affectionate farewell to M. Point, and went out into the garden."
- Joseph Wechsberg