Valpolicella rauðvín er eitt af þessum lykilvínum í ítalskri víngerð. Þá erum við að tala um orðspor og aðgengi en líka karakter því gott Valpolicella fangar ímynd margra um hið dæmigerða, ítalska rauðvín. Þessi flokkur vína sökk niðurávið á tímabili þegar eingöngu var hugsað um magn fremur en gæði en undanfarna áratugi hefur hver endurvakningin vakið aðra og ný andlit bæst í flóru metnaðarfullra framleiðenda. Ca Rugate gerir fjögur Valpolicella rauðvín þar sem Amarone trónir á toppnum en litla vínið Rio Albo færir okkur karakterinn í léttari og aðgengilegri útgáfu. Þægilegur jarðaberja- og kirsuberjailmur, mjúk og hófleg tannín, frískleg sýra og fremur lágt áfengismagn gera þetta að góðu víni til almenns brúks. Óeikað. Best með grilluðum kjúklingi og svínakjöti.
VÍN MÁNAÐARINS 4 glös "Ljúffengt vín við flest tækifæri" Gestgjafinn. Lestu dóminn
Ca Rugate
Tessari fjölskyldan framleiðir frískleg Soave hvítvín og Valpolicella rauðvín í hjarta Veneto héraðsins.
Rauðvín
Hvítvín