Bucciato
Veneto Bianco I.G.T. 
  • árgangur: 2008
  • þrúga: Garganega
  • svæði: Veneto
  • verð: 2.790 (500ml)
  • fæst í Kringlunni, Heiðrúnu og Skútuvogi

Að segja að Bucciato hvítvínið sé "sérstakt" eða "óvenjulegt" er engin fjarstæða. Það er samt rétt að benda á að framleiðsluaðferðin á bak við vínið er í raun ævagömul og um er að ræða endurvakningu gamallar víngerðarhefðar. Þegar hvítvín eru framleidd eru þau vanalega ekki látin vera í snertingu við hýðið lengur en nauðsyn krefur heldur dælt beint í stáltanka (eða eikartunnur) þar sem gerjun fer fram. Bucciato fær afturámóti að gerjast í fjóra til fimm daga "í skinninu" þar til safanum er loks dælt á tanka þar sem gerjunin klárast. Þetta útskýrir gylltan litinn og oxideraðan ilm. Reyndar eru þessi einkenni alls ekki óþekkt þótt við tengjum þau vanalega ekki við hvítvín heldur við aðra flóru vína eins og þau sem kennast við Jerez (sérrí) eða hin heilögu, ítölsku sætvín Vin Santo. Áhugavert vín til að sötra eitt og sér og upplifa eitthvað öðruvísi - en ekki gleyma að það er frábært með mat eins og saltfiski eða sterk-krydduðum kjötréttum.

Til baka

Ca Rugate
Tessari fjölskyldan framleiðir frískleg Soave hvítvín og Valpolicella rauðvín í hjarta Veneto héraðsins.

Meira um framleiðandann

 



Rauðvín

Corvina, Rondinella og Corvinone, 2.597 kr.

Corvina, Rondinella og Corvinone, 3.998 kr.


Hvítvín

Garganega, 2.790 kr.

Garganega, 2.597 kr.



"I think it is a great error to consider a heavy tax on wines as a tax on luxury. On the contrary, it is a tax on the health of our citizens."
- Thomas Jefferson