Vin Santo
Vin Santo del Chianti Classico D.O.C.
  • árgangur: 2005
  • þrúga: Malvasia og Trebbiano
  • svæði: Toskana
  • verð: 3.720 kr. (500ml)
  • fæst í öllum stærri Vínbúðum (sérlisti) og á veitingastaðinum La Primavera
Blanda af Malvasia og Trebbiano og framleitt í aðeins 2.000 500ml. flöskum.  Þrúgurnar er látnar skreppa saman í 2-3 mánuði þar til þær verða að hálfgerðum rúsínum sem eru pressaðar og safinn látinn gerjast/þroskast í u.þ.b. 5 ár í litlum viðartunnum áður en vínið er sett á flöskur.  Alessandro og Antonietta vilja ekki hafa Vin Santo-ið sitt of sætt og því er þessi stíll aðeins þurrara megin við miðju miðað við sætleika þessara fágætu vína.  Sterkur og flókinn ilmur af þurrkuðum ávöxtum, hnetum og karmellu; gott með paté, sterkum ostum eða eitt og sér.
Til baka

Castello Di Querceto
Rauðvínin frá "Kastala eikarskógarins" eru hógvær á yfirborðinu en við nánari kynni verða þau djúp, gjöful, persónuleg og auðveld að líka. Svolítið eins og eigendur þeirra Alessandro og Antonietta.


Meira um framleiðandann

 



Rauðvín

Sangiovese, 5.890 kr.

Sangiovese, Canaiolo og Trebbiano, 2.190 kr.

Sangiovese og Canaiolo, 2.997 kr.

Sangiovese og Canaiolo, 3.889kr.


Hvítvín

Chardonnay, 5.890 kr.


Freyðivín

Chardonnay, 2.390 kr.


Sætvín

Malvasia og Trebbiano, 3.720 kr.


Sterkt áfengi




"Því miður er almenn vínmenníng hérlendis á því ómenníngarstigi, að fyrir þá sök eina er ekki með sanngirni hægt að telja íslendinga meðal siðaðri þjóða einsog er."

- Halldór Laxness