"Beljan" Rauðvín - Toscana Rosso
Toscana Rosso I.G.T.
  • árgangur: 2008
  • þrúgur: að mestu Sangiovese með svolitlu Canaiolo
  • svæði: Toskana
  • verð: 5.890 kr.
  • fæst í Kringlunni, Heiðrúnu og Skútuvogi
  • www.beljan.is
  • Beljan er á Facebook

Fyrsta kassavínið okkar kemur frá þessum rómaða framleiðanda í hjarta Ítalíu, Chianti Classico í Toskana. Þetta er í fyrsta skipti sem Castello di Querceto framleiðir kassavín yfir höfuð og það gerir hann sérstaklega fyrir okkur enda höfum við átt í afskaplega góðu sambandi við kastalabúana Alessandro og Antoniettu. Vínið í rauðu "Beljunni" eins og við köllum þetta kassavín (okkar á milli) er framleitt úr sömu þrúgum og Chianti-rauðvín framleiðandans með Sangiovese þrúguna í aðalhlutverki og ber það öll einkenni hennar. Það hefur góð snerpu sem gerir því kleift að standa uppi í hárinu á fjölbreyttum mat, allt frá pizzum í steikur.

Beljan á sér langan aðdraganda og hafa margir lagt hönd á plóginn með góðum athugasemdum og tillögum eftir að hugmyndin fæddist hjá Arnari og Rakel og kunnum við þeim öllum bestu þakkir fyrir. Hönnun var unnin af Einari Geir Ingvarssyni, nágranna Beljunnar, teikning eftir Rakel og texti eftir Arnar og almenn afskiptasemi í höndum ritstjórans Valgeirs.

Skoðaðu líka Hvítu Beljuna

Til baka

Castello Di Querceto
Rauðvínin frá "Kastala eikarskógarins" eru hógvær á yfirborðinu en við nánari kynni verða þau djúp, gjöful, persónuleg og auðveld að líka. Svolítið eins og eigendur þeirra Alessandro og Antonietta.


Meira um framleiðandann

 



Rauðvín

Sangiovese, 5.890 kr.

Sangiovese, Canaiolo og Trebbiano, 2.190 kr.

Sangiovese og Canaiolo, 2.997 kr.

Sangiovese og Canaiolo, 3.889kr.


Hvítvín

Chardonnay, 5.890 kr.


Freyðivín

Chardonnay, 2.390 kr.


Sætvín

Malvasia og Trebbiano, 3.720 kr.


Sterkt áfengi




Once ... in the wilds of Afghanistan, I lost my corkscrew, and we were forced to live on nothing but food and water for days.

W. C. Field