Fyrsta kassavínið okkar kemur frá þessum rómaða framleiðanda í hjarta Ítalíu, Chianti Classico í Toskana. Þetta er í fyrsta skipti sem Castello di Querceto framleiðir kassavín yfir höfuð og það gerir hann sérstaklega fyrir okkur enda höfum við átt í afskaplega góðu sambandi við kastalabúana Alessandro og Antoniettu. Vínið í hvítu "Beljunni" er að mestu úr Chardonnay, þeirri þokkafullu alþjóðastjörnu, en einnig kemur þarna heimasætan Trebbiano svolítið við sögu. Frísklegt og vel gert vín sem léttir lund og bætir hverja máltíð. Hentar sérstaklega vel með grænmetisfæði, léttari fiskréttum og pasta.
Beljan á sér langan aðdraganda og hafa margir lagt hönd á plóginn með góðum athugasemdum og tillögum eftir að hugmyndin fæddist hjá Arnari og Rakel og kunnum við þeim öllum bestu þakkir fyrir. Hönnun var unnin af Einari Geir Ingvarssyni, nágranna Beljunnar, teikning eftir Rakel og texti eftir Arnar og almenn afskiptasemi í höndum ritstjórans Valgeirs.
Skoðaðu líka Rauðu Beljuna
Castello Di Querceto
Rauðvínin frá "Kastala eikarskógarins" eru hógvær á yfirborðinu en við nánari kynni verða þau djúp, gjöful, persónuleg og auðveld að líka. Svolítið eins og eigendur þeirra Alessandro og Antonietta.
Rauðvín
Hvítvín
Freyðivín
Sætvín
Sterkt áfengi