Chianti
Chianti D.O.C.G.
  • árgangur: 2007
  • þrúgur: Sangiovese, Canaiolo og Trebbiano
  • svæði: Toskana
  • verð: 2.190 kr.
  • fæst í Kringlunni, Heiðrúnu og Skútuvogi

Eina vínið frá Castello di Querceto sem Vín & Matur flytur inn sem framleitt er úr aðkeyptum þrúgum.  Þrúgurnar koma frá svæði, Colline del Valdarno, nokkra kílómetra frá kastalanum en sem liggur rétt utan við Chianti Classico og því kallast vínið eingöngu Chianti.  Alessandro velur þrúgurnar þó greinilega vel því skyldleikinn við upprunalegu vín kastalans er augljós.  Þetta er óeikað vín og silkimjúkt þar sem áherslan er fyrst og fremst lögð á ferskleika og léttleika svo auðvelt og gott sé að drekka það með mat enda hefur það verið valið á vínlista Icelandair Business-class (2005-6). Lítill tannín, mild sýra og lágt áfengismagn (12%) eiga drjúgan þátt í aðgengileika vínsins. Gott með léttum grænmetisréttum, pasta, pizzum og ljósu kjöti, jafnvel fiski þar sem tannín eru svo lítil

4 glös BESTU KAUPIN "frábær kaup" Gestgjafinn. Lestu dóminn

[2004]
85 stig "mjúkt í munni " Mbl. Lestu dóminn

Til baka

Castello Di Querceto
Rauðvínin frá "Kastala eikarskógarins" eru hógvær á yfirborðinu en við nánari kynni verða þau djúp, gjöful, persónuleg og auðveld að líka. Svolítið eins og eigendur þeirra Alessandro og Antonietta.


Meira um framleiðandann

 



Rauðvín

Sangiovese, 5.890 kr.

Sangiovese, Canaiolo og Trebbiano, 2.190 kr.

Sangiovese og Canaiolo, 2.997 kr.

Sangiovese og Canaiolo, 3.889kr.


Hvítvín

Chardonnay, 5.890 kr.


Freyðivín

Chardonnay, 2.390 kr.


Sætvín

Malvasia og Trebbiano, 3.720 kr.


Sterkt áfengi




"It was with a delicious feeling of lightheadedness and supreme contentment that, in the late afternoon, I paid my bill, bid an affectionate farewell to M. Point, and went out into the garden."
- Joseph Wechsberg