Pic Saint-Loup er með betri vínsvæðum Languedoc héraðsins og vín sem fá að kalla sig eftir því þurfa að fara eftir strangari forskrift en önnur vín á svæðinu. Lascaux fer ekki bara eftir heldur gerir talsvert betur en lög gera ráð fyrir og er útkoman þetta dökka og glæsilega rauðvín. Milt og þægilegt vín sem er hjúpað þykkum og sætum ábexti. Eins og húsvínið Coteaux du Languedoc frá sama framleiðanda er þetta óeikað vín en er látið þroskast í staðinn í 14-15 mánuði í sementstönkum til að viðhalda mýkt og ávexti.
3 1/2 glas "létt með þægileg tannín" Gestgjafinn. Lestu dóminn
18/20 "ávöxturinn sætur og þægilegur" Mbl. Lestu dóminn
Chateau de Lascaux
Í hátt í 9 aldir hefur fjölskylda Cavalier búið og ræktað landið þar sem vínræktin fer fram í dag. Pic Saint Loup er með betri vínræktarsvæðum Languedoc og er Chateau de Lascaux í hópi leiðandi framleiðanda á svæðinu.
Meira um framleiðandann
Rauðvín