Comtesse Madeleine
Côtes du Rhône
  • árgangur: 2007
  • þrúgur: Viognier, Marsanne, Clairette, Bourboulenc og Picpoul 
  • svæði: Rón
  • verð: 2.913 kr.
  • fæst í Heiðrúnu, Kringlunni og Skútuvogi

Comtesse Madelein de Pins var húsfrú Montfaucon kastalans í yfir 60 ár. Hún var amma Rodolphe sem nú stýrir víngerðinni og hefur hann tileinkað þetta vín minningu hennar. Vínið er blanda af a.m.k. fimm ólíkum þrúgum sem hver gefur því sinn karakter; Viognier er ilmríkust, Marsanne gefur því ávöxt og þykkt og Clairette, Bourboulenc og Picpuol auka sýru, ferskleika og steinefni hver á sinn hátt. Útkoman er einstaklega heillandi og glæsilegt hvítvín sem hefur jafnframt þroskast í 8 mánuði í frönskum eikartunnum. Vínið gengur með hvers slags fiskifæði, ekki síst hörpuskelfiski og humri.

Til baka

Chateau de Montfaucon  
Hátt hlutfall af gömlum vínvið og lífræn ræktun m.a. skilar framúrskarandi Rónarvínum frá Montfaucon undir handleiðslu Rodolphe de Pins. Samkvæmt hefðinni eru flest vínin blönduð af all mörgum mismunandi þrúgnategundum og einkennast af heillandi ferskleika og fágun.


Meira um framleiðandann

 


Rauðvín

Grenache, Syrah, Cinsault og Carignan, 2.489 kr.


Hvítvín

Viognier, Marsanne, Clairette, Bourboulenc og Picpoul, 2.913 kr.



"Því miður er almenn vínmenníng hérlendis á því ómenníngarstigi, að fyrir þá sök eina er ekki með sanngirni hægt að telja íslendinga meðal siðaðri þjóða einsog er."

- Halldór Laxness