Les Galets Dorés
Costières de Nîmes A.O.C.
  • árgangur: 2007
  • þrúgur: Grenache Blanc, Roussane, Vermentino, Marsanne og Clairette
  • svæði: Languedoc
  • verð: 2.590 kr. 
  • fæst í Heiðrúnu, Kringlunni og Skútuvogi.

Hvítvín eins og þetta eru að okkar skapi og er það ekki furða hvað okkur finnast suður-frönsk hvítvín skemmtileg. Ferskleiki umfram allt sem einkennist af sítrus og hvítum blómailm en undir niðri er hunangskenndur hjúpur sem gefur því þéttleika svo það gælir við góminn. Hér er fimm ólíkum þrúgum blandað saman til að skapa einn sterkan einstakling. Þéttleiki vínsins gerir það ekki bara gott með fiski (humar, lúða ekki síst) heldur einnig með ljósu fuglakjöti og jafnvel svínakjöti.

Til baka

Chateau Mourgues du Gres 
Mikill þroski, sultukenndur ávöxtur, hiti og krydd einkennir vínin frá víngerðinni. Það gera hinir miklu hitar sem magnast er sólin skín á stóru, rauðu steinana er þekja vínekrurnar sem allar snúa auk þess til suðurs.

Meira um framleiðandann

 


Rauðvín

Syrah, Grenache, Carignan og Mourvédre, 1.850 kr. (500ml)

Grenache og Syrah, 3.190 kr.


Hvítvín

Grenache Blanc, Roussane, Vermentino, Marsanne og Clairette, 2.490 kr.



.
"But then of course Cassis tastes better at Cassis! Debussy sounds better after a walk through the foggy, puddled streets of latenight Paris. You are in the midst of the atmosphere that created it. The wine is not different, the music is not different. You are."
- Kermit Lynch