Dæmigert s-franskt rauðvín með miklum og þroskuðum ávexti án þess að fara út af sporinu. Þvert á móti er vínið allt fremur elegant. Undir niðri finnur maður fyrir lággróðri, jörð og kryddi en í eftirbragði vottar fyrir lakkrís og kaffi. Vínekrunar kenndar við Minervois svæðið eru einar þær bestu í Languedoc sem skilar sér í þessu ljúfa víni sem okkur finnst frábær kaup. Mild tannín gera vínið aðgengilegt enda þroskinn líka orðinn talsverður eftir þessi 5 ár. Flott með lambakjöti eða nautakjöti sem er eldað á einfaldan hátt þar sem kjöt og vín njóta sín sem best.
VÍN MÁNAÐARINS 4 glös "Öll Minervois-sveitin í glasinu" Gestgjafinn. Lestu dóminn
Combe Blanche
Belginn Guy Vanlacker framleiðir flott vín með karakter í Minervois, einu best vínræktarsvæði Languedoc héraðs í S-Frakklandi.
Rauðvín
Hvítvín