Sannkallaður hvalreki því það er ekki á hverjum degi sem okkur býðst 9 ára gamalt vín (frá 2001) frá einu besta vínræktarsvæði Languedoc-héraðs, Minervois. Nánar tiltekið kemur þetta vín af litlu svæði innan Minervois sem hefur ennþá hærri gæðastimpil, La Liviniere. Þrátt fyrir "háan" aldur og mjög jákvæð þroskaeinkenni er vínið ennþá fullt af lífi og verður um nokkurra ára skeið til viðbótar. Flott með steikum og villibráð eins og hreindýri, önd og gæs, eða þroskuðum ostum. Verðið gerir þetta "gran reserva" bara girnilegra.
Combe Blanche
Belginn Guy Vanlacker framleiðir flott vín með karakter í Minervois, einu best vínræktarsvæði Languedoc héraðs í S-Frakklandi.
Rauðvín
Hvítvín