The Footbolt
  • árgangur: 2006
  • þrúgur: Shiraz
  • svæði: McLaren Vale
  • verð: 2.890 kr. 
  • fæst í Kringlunni og Heiðrúnu

Skírt í höfuðið á veðhlaupahesti sem forfaðir vínframleiðandans keypti 1898. Vinningsféið var síðan notað til að stofna víngerðina og er The Footbolt búið til að hluta úr þrúgum af sama vínvið og gaf af sér fyrstu vínin fyrir um 100 árum síðan. Vínið er látið þroskast 18 mánuði í blöndu af frönskum og amerískum eikartunnum, að mestu notuðum.  Reykkendur ilmur með áberandi súkkulaði, lakkrís og þykkur ávöxtur í munni og talsverð sýra. Ekki bara yfirborðskenndur ávaxtabolti heldur jarðtengt og gott matarvín með kröftugri eldamennsku frá miðjarðarhafinu eða villibráð.

Hvað segja íslenskir bloggarar um vínið? Kíktu á vínkeðjuna

90+ stig Robert Parker

[2004]
Vín mánaðarins - 4 1/2 glas "Frábært vín" Gestgjafinn. Lestu dóminn

90 stig "fantavel gerður" Mbl. Lestu dóminn

87 stig "scents of black currants, licorice, roasted meats, and spicy herbs" Robert Parker

Lestu meira um The Footbolt 2004 á vefsíðu framleiðandans

[2003]
19/20 "vel uppbyggt og langt" Mbl. Lestu dóminn

4 glös "flauelsmjúkt og áferðarfallegt" Gestgjafinn. Lestu dóminn

World's 50 Best Buys Decanter. Lestu meira

Til baka

d'Arenberg

Rauður borði, skáhallt yfir flöskumiðann, er einkennismerki d'Arenberg. Tákn fyrir gæði. Borðinn hefur prýtt flöskur fyrirtækisins frá 1959. D'Arenberg er með rótgrónustu fyrirtækjum Ástralíu, var stofnað 1912 af Osborn fjölskyldunni sem á fyrirtækið og rekur enn þann dag í dag.


Meira um framleiðandann




Rauðvín

Shiraz, 5.500 kr.

Shiraz, 2.890 kr.

Shiraz og Viognier, 2.913 kr.

Grenache, Shiraz og Mourvedre (GSM), 2.289 kr.



Hvítvín


Riesling, 2.289 kr.



 


"It was with a delicious feeling of lightheadedness and supreme contentment that, in the late afternoon, I paid my bill, bid an affectionate farewell to M. Point, and went out into the garden."
- Joseph Wechsberg