The Stump Jump er ný lína af vínum frá d'Arenberg. Lightly Wooded Chardonnay er nauðsynlegt að hafa við höndina þegar Chardonnay þörfin kemur yfir mann, þ.e.a.s. þegar mann langar í svolítið "eikað" og "ristað" hvítvín, kannski með laxinum eða humrinum. En hér er þó ekki allt vaðandi í eik eða reyk. Stutt dvöl um fjórðungs vínsins í eikartunnum gefur því þægilegan blæ af tunnunum, rétt mátulegan til að gefa því réttan karakter eins og nafn þess gefur til kynna "Lightly Wooded". d'Arenberg teymið er sérstaklega lunkið við að framleiða vín sem eru hvort tveggja í senn, þykk og safarík, létt og fersk. Svona vín þurfa allir að eiga.
4 glös Gestgjafinn
Rauður borði, skáhallt yfir flöskumiðann, er einkennismerki d'Arenberg. Tákn fyrir gæði. Borðinn hefur prýtt flöskur fyrirtækisins frá 1959. D'Arenberg er með rótgrónustu fyrirtækjum Ástralíu, var stofnað 1912 af Osborn fjölskyldunni sem á fyrirtækið og rekur enn þann dag í dag.
Rauðvín
Hvítvín