The Stump Jump GSM
  • árgangur: 2007
  • þrúgur: Grenache, Shiraz og Mourvedre  (GSM)
  • svæði: McLaren Vale
  • verð: 2.289 kr. 
  • fæst í Kringlunni, Heiðrúnu og Skútuvogi

The Stump Jump er húsblanda d'Arenberg víngerðarinnar og er hún framleidd úr þeim þrúgum sem eru við hendina hverju sinni og því aðeins mismunandi ár frá ári. Það er framleitt að jafnaði úr hinni sívinsælu GSM blöndu, þ.e.a.s. hún er þrúgunum Grenache, Shiraz og Mourvedre. Vínið er eikað í 12 mánuði en eikarbragðið finnst ekki svo mikið þar sem ætlunin er að búa til sem ferskast vín. Það hefur tekist. Léttleiki vínsins og ferskleiki minnir nokkuð á sambærileg vín frá Cotes-du-Rhone í Frakklandi. Berjaríkt vín með áberandi fersku kryddi og pipar, þroskað en góð sýra sér til þess að það verði aldrei þungt. Nafnið er í höfuðið á ákveðinni tegund af plógi sem var notaður á vínekrunum.

Lestu um The Stump Jump 2005 á vefsíðu d'Arenberg

87 stig "feitt og þykkt yfirbragð" Mbl. Lestu meira

Blátt Gull "Topp 10% af vínum með mat" Sidney International Wine Competition. Lestu meira

89 stig "A super value" Robert Parker. Lestu meira

4 stjörnur "It´s a little like an Australian Cote-du-Rhone " The Age Epicure. Lestu dóminn

Til baka

d'Arenberg

Rauður borði, skáhallt yfir flöskumiðann, er einkennismerki d'Arenberg. Tákn fyrir gæði. Borðinn hefur prýtt flöskur fyrirtækisins frá 1959. D'Arenberg er með rótgrónustu fyrirtækjum Ástralíu, var stofnað 1912 af Osborn fjölskyldunni sem á fyrirtækið og rekur enn þann dag í dag.


Meira um framleiðandann




Rauðvín

Shiraz, 5.500 kr.

Shiraz, 2.890 kr.

Shiraz og Viognier, 2.913 kr.

Grenache, Shiraz og Mourvedre (GSM), 2.289 kr.



Hvítvín


Riesling, 2.289 kr.



 


"Rejecting a wine because it is not big enough is like rejecting a book because it is not long enough, or a piece of music because it is not loud enough."
- Kermit Lynch