The Stump Jump Lightly Wooded Chardonnay
  • árgangur: 2008
  • þrúgur: Chardonnay
  • svæði: McLaren Vale
  • verð: 2.289 kr.
  • fæst í Vínbúðunum Heiðrúnu, Kringlunni og Skútuvogi.

The Stump Jump er ný lína af vínum frá d'Arenberg. Lightly Wooded Chardonnay er nauðsynlegt að hafa við höndina þegar Chardonnay þörfin kemur yfir mann, þ.e.a.s. þegar mann langar í svolítið "eikað" og "ristað" hvítvín, kannski með laxinum eða humrinum. En hér er þó ekki allt vaðandi í eik eða reyk. Stutt dvöl um fjórðungs vínsins í eikartunnum gefur því þægilegan blæ af tunnunum, rétt mátulegan til að gefa því réttan karakter eins og nafn þess gefur til kynna "Lightly Wooded". d'Arenberg teymið er sérstaklega lunkið við að framleiða vín sem eru hvort tveggja í senn, þykk og safarík, létt og fersk. Svona vín þurfa allir að eiga.

4 glös "Stórskemmtilegt vín" Gestgjafinn. Lestu meira

Til baka

d'Arenberg

Rauður borði, skáhallt yfir flöskumiðann, er einkennismerki d'Arenberg. Tákn fyrir gæði. Borðinn hefur prýtt flöskur fyrirtækisins frá 1959. D'Arenberg er með rótgrónustu fyrirtækjum Ástralíu, var stofnað 1912 af Osborn fjölskyldunni sem á fyrirtækið og rekur enn þann dag í dag.


Meira um framleiðandann




Rauðvín

Shiraz, 5.500 kr.

Shiraz, 2.890 kr.

Shiraz og Viognier, 2.913 kr.

Grenache, Shiraz og Mourvedre (GSM), 2.289 kr.



Hvítvín


Riesling, 2.289 kr.



 


"Always do sober what you said you'd do drunk. That will teach you to shut your mouth."
- Hemingway