Valpolicella
Valpolicella Superiore D.O.C
  • árgangur: 2003
  • þrúgur: Corvina, Rondinella, Croatina og Oseletta
  • svæði: Veneto
  • verð: 7.990 kr.
  • fæst með sérpöntun

Ólíkt öðrum Valpolicella vínum er þetta framleitt úr þurrkuðum þrúgum og þess vegna líkist meira Amarone í stíl enda kraftabolti hér á ferð með 15% áfengismagn. Það sem skilur helst að er að þær eru látnar þurrkast skemur í þessu vínu heldur en í Amarone víni framleiðandans, í tvo mánuði í stað fjögurra. Það stígur þó létt til jarðar, sýran og bjartir yfirtónar ávaxtarins sjá um það. Þroskað í 36 mánuði í eikartunnum, frönskum og amerískum, og síðan 12 mánuði í flösku áður en það er sett á markað. Eikartónar eru því áberandi á yfirborði ilmsins en undir niðri kraumar samþjappaður kjarni sem einkennist helst af sætum kirsuberjum. Í munni leynir vönduð víngerðin sér ekki því vínið er flauelsmjúkt með mikilli fyllingu. Það er alll þurrt þrátt fyrir sætan kjarnann og endar á steinefnaríku eftirbragði sem minnir á byssupúður. Keimur af sætum berjum lifir í munni endalaust að því er virðist. Nútímalegt vín sem hefur engu að síður sterk upprunaeinkenni sem eru óneitanlega Valpolicella-leg þrátt fyrir sérstöðu vínsins.

Til baka

Dal Forno Romano
Kóngurinn í Valpolicella framleiðir Amarone og Valpolicella sem eiga sér engan líkan.

Meira um framleiðandann

 



Rauðvín

Corvinone, Rondinella, Croatina og Oselata, 21.000 kr.

Corvinone, Rondinella og Croatina, 7.990 kr.


Sætvín

Corvina, Rondinella, Croatina og Oseletta, 13.500 kr.



"Því miður er almenn vínmenníng hérlendis á því ómenníngarstigi, að fyrir þá sök eina er ekki með sanngirni hægt að telja íslendinga meðal siðaðri þjóða einsog er."

- Halldór Laxness